Arkitektar

Leiðbeiningarbæklingar


Stutt kynning á Gráu möppunni

» Opnaðu Gráu möppuna

Markmið: 

Markmiðið með verkfærinu Gráu möppunni er að gefa þér tækifæri til þess að setja saman málningaráætlun og Vöru- og öryggisgagnablöð.

Upphafssíða:

Á upphafssíðunni geturðu valið um þá fjóra kosti sem bjóðast í kerfinu:

  • Málningaráætlun
  • Vöru- og öryggisgagnablöð
  • Upplýsingar og fyrirvarar
  • Grunnupplýsingar um kerfið

Málningaráætlanir:

Að gera málningaráætlun:
Þegar gera á málningaráætlun er byrjað á því að ákveða hvað hluta hússins á að taka fyrir (1. skjámynd). Þetta er gert með því að smella með músinni á viðkomandi húshluta. Að því búnu kemur upp ný skjámynd þar sem valið er um málun, viðhald o.s.frv. Haldið er áfram að þróa áætlunina þangað til búið er að velja viðeigandi vöru. Þegar smellt á «Hjálp» birtist hjálpartexti í sérstökum glugga með þeim faglegu skilgreiningum / skýringum sem skipta máli í því verkefni sem valið hefur verið á hverri skjámynd. Ef þú smellir á «Til baka» ferðu aftur á fyrri skjámynd.

Að prenta út málningaráætlun: 

Þegar valinu er lokið og áætlunin tilbúin er það tilkynnt á skjánum og þú ferð í valmyndina hægra megin á skjánum. Þar er hægt að fá að skoða áætlunina á skjánum (veldu «Sýna útprentun») og svo að prenta áætlunina út (veldu «Prenta»). Það má einnig velja að skoða og / eða prenta upplýsingablöð um vörur og öryggisþætti fyrir þær vörur sem áætlunin tekur til, ásamt leiðbeiningum um viðhald og hreingerningu. Þú velur í valmynd þá þætti sem þú vilt skoða eða prenta út.

Að leita eftir áætlunarnúmeri:

Hver áætlun fær sitt sérstaka númer sem kemur fram hverju sinni. Þú fylgist með því hvernig númerið verður til á skjánum eftir því sem áætlunin þróast. Það er hægt að leita beint að áætluninni með því að slá viðkomandi númer í reitinn neðst til vinstri á skjámyndinni og síðan að smella á «Leitað að áætlunarnúmeri».

Vöru- og öryggisgagnablöð:

Þú getur leitað að Vöru- og öryggisgagnablöðum um vörur frá Flügger með því að slá inn heiti vörunnar (eða hluta þess) í reitinn neðst á skjámyndinni. Það má einnig leita með því að nota sér hnappana «Fyrsta», «Næsta á undan», «Næsta» og «Síðasta».

Ef þú vilt skoða / prenta úr valið vöru- og öryggisgagnablað velurðu «Sýna útprentun».
 
Ef þú vilt spyrja einhvers um Gráu möppuna má spyrja tæknilega þjónustudeild » hér