Flügger samsteypan er með alþjóða vottun ISO14001. Það þyðir að í vörum okkar notum við efni sem eru náttúruvæn þar að segja skaðlaus umhverfinu. Framvegis verða allar okkar vörur merktar þessum staðli.
ISO14001 mun framvegis vera á okkar umbúðum.
Sem málningarframleiðandi stuðlar Flügger samsteypan að náttúruvænni framtíð. Þess vegna eru allar okkar verksmiðjur þar sem málning er framleidd vottuð með gæðastimplinum ISO14001.
Í okkar verksmiðjum notum við eins lítið af rafmagni, vatni, leysiefnum og öðrum hættulegum efnum við framleiðslu málningarinnar sem tryggir okkur gæðastimpilinn ISO14001
ISO 14001 vottunin þýðir einnig að við þurfum ávallt að vera fremstir í umhverfisvænni vöruþróun.
Eitt af umhverfismarkmiðum Flugger er að setja vatnsþynntar vörur í stað terpentínu og þynnis þynntra efna.
Kynnigin á Aqua línunni 2008 er stór liður í því markmiði.
Rannsóknastofa Flugger er leiðandi í þróun á umhverfisvænni vöru. Við höfum eco – gæðastimpil á nokkrum af okkar vörum og er okkar markmið að auka framboð af vörum merktum EU – blóminu.