Mettar og lokar yfirborði viðarins, þannig að óhreinindi og vökvar smjúga ekki í tréð og mislita það. Skilar fallegum silkimöttum, slitsterkum fleti, sem auðvelt er að þrífa. Er hægt að lita hvítt. Þannig fær flöturinn hvítskúraða áferð. Er einnig hægt að lita í öllum hálfþekjandi litum.
Fluganyl akrýlgólfmálning er fljótþornandi akrýlplastmálning sérstakleg gerð fyrir gólf. Fluganyl akrýlgólfmálning hleypir raka í gegnum sig og hentar þess vegna á gólf sem verða fyrir rakaálagi neðan frá.
Vatnsþynnt lakk á trégólf. Myndar hart, óviðkvæmt og slitsterkt yfirborð, sem auðvelt er að þrífa. Fæst í þremur gljástigum: Últramöttu, hálfgljáandi og gljáandi. Séreinkenni á últramöttu er að það hefur svipaða áferð og olíuborið en styrk á við lakk. Við endurmálun skal aftur nota sömu lakktegund.
Sígilt lakk á trégólf, innanhúss. Myndar hart, óviðkvæmt og sérlega slitsterkt yfirborð, sem auðvelt er að þrífa. Viðurinn fær fyllta, hlýlega áferð sem með tímanum fær á sig gullinn blæ. Sumum finnst lyktin af þornandi alkýð sterk/óþægileg. Lyktin hverfur smá saman við venjulegt hita-og rakastig. Að öðrum kosti má velja vatnsþynnt lakk sem ekki veldur sömu óþægindum.
Flügger gólfolía dregur fram viðargerðina og myndar matt yfirborð með hlýlegri glóð. Yfirborð sem hrindir frá óhreinindum og vatni og auðvelt er í viðhaldi og til blettaviðgerða. Hvít gólfolía gerir viðinn sem hvítskúraðan.
Sápa til þvotta og til að metta ómeðhöndlaða og sápu-og lútborna tréfleti. Hreinsar vel, mettar holgöng í viðnum og ver yfirborðið jafnframt gegn upptöku óhreininda og vökva.
Vatnsfráhrindandi viðhaldsefni. Smýgur í gljúpt yfirborð, kallar fram náttúrlegan lit og glóð. Mettar og lokar yfirborðinu svo það hrindir betur frá sér óhreinindum og auðveldar er að þrífa.
Tilbúinn vökvi sem lýsir lauftré og undirstrikar viðargerðina. Lauftréslútur bleikir og lýsir yfirborðið.
Flokkur: Plastgólflakk, einþátta, hálfgljáandi eða hágljáandi. P-et parketlakk er sjálfharðnandi, 1-þátta plastlakk sem myndar ljósþolna, litlausa og mjög slitsterka filmu sem andar. Fer vel í rúllu.
Flokkur: 2.-þátta pólýúretanlakk, hálfgljáandi. P-to er 2. þátta ísósýanatlakk (pólýúretanlakk) sem myndar sérstaklega slitsterka filmu sem er mjög efnaþolin.
Hvítlitað, vatnsþynnt lakk á ljósar viðarþiljur. Skilar í einni umferð fallegu, hálfmöttu, björtu yfirborði þar sem viðargerðin sést í gegn. Vinnur gegn gulnun viðarins. Flöturinn hrindir frá sér óhreinindum og auðvelt er að þrífa.
Flokkur: Olíupasti, hvítur og ólitaður. Flügger olíupasti frískar upp og viðheldur öllum olíubornum flötum. Myndar varnarhúð á fletinum og dregur fram eðlilegan lit og glóð viðarins.
Staðsetning og opnunartímar
Flugger passar uppá umhverfið