Hentar vel á grófa fleti í loftum og veggi og útveggi með áferð. Hárin eru sérlega löng og geta haldið mikilli málningu. Áferðin verður hins vegar grófari fyrir vikið. Má nota með ýmsum tegundum málningar á áðurnefndum flötum
Rúlla með margþætt notagildi og með löngum hárum sem nota má á t.d. loft, veggi og útveggi. Hún tekur til sín töluvert af málningu og myndar hnökrótta áferð. Hún er mjög auðveld í notkun á öllum áðurnefndum flötum með fjölbreyttu úrvali af málningu.
Það hentar vel fyrir slétt yfirborð þar sem þú vilt ná fram einleitri appelsínubarkaráferð. Velourrúllan er notuð með vatnsþynnanlegri málningu og lakki.
Þessi rúlla er með stuttum hárum og tekur þess vegna ekki eins mikla málningu til sín og rúllur með löngum hárum. Hún gefur létthnökrótta áferð á t.d. fínslípuðum veggjum og óhefluðum fjölum. Hana má nota til að bera á málningu, viðarvörn og lakk á jafnt stóra sem litla fleti.
Bæklingur fagmannsins
Staðsetning og opnunartímar