Hálfmött, hylur vel, sérlega hentug þegar breyta skal um lit. Undirstrikar viðaráferð en hylur árhringi. Veitir hámarksvernd gegn veðrun og eykur endingu viðarins. Hindrar myglu- og sveppagróður á yfirborði.
Þekjandi viðarvörn. Myndar veðurþolna, hálfmatta filmu sem hylur vel. Hentar sérlega vel þegar skipt er um lit. Undirstrikar viðaráferð en hylur árhringi. Veitir hámarks veðrunarvernd og eykur endingu viðarins. Hlaupkennd þykktin tryggir að viðarvörnin er auðveld í notkun og lekur ekki. Hindrar myglu- og sveppagróður á yfirborði.
Er hálfþekjandi og dregur fram viðaráferð og árhringi. Verndar viðinn gegn veðrun og eykur endingu hans. Efnið er dálítið hlaupkennt, dropar ekki og er létt í notkun. Hindrar myglu- og sveppagróður á yfirborði.
Vatnsþynnt alkýðolía, grunnolía á tré. Smýgur djúpt inn í viðinn, fyllir holrými og tryggir góða viðloðun við yfirmálningu.Veitir öfluga vörn gegn myglu- og sveppamyndun bæði í viðnum og yfirmálningu. Hindrar stórlega sprungumyndun í viðnum.
Alkýðolía til grunnunar á tré. Smýgur djúpt í viðinn, fyllir holrými og tryggir viðloðun við síðari yfirferðir. Veitir öfluga vörn gegn myglu og sveppagróðri, bæði í viðnum sem og í yfirmálningu. Stórminnkar sprungumyndun í tré.
Vatnsþynnt, fyllt alkýð-grunnmálning á tré. Smýgur í viðinn og tryggir viðloðun við yfirmálningu. Hindrar rakaupptöku og lágmarkar sprungumyndun. Er þáttur í kerfismálun, þar sem hún ásamt grunnolíu og þekjandi yfirmálningu tryggir hámarks- hulu, endingu og aukavernd. Hindrar myglu og sveppagróður á yfirborði lokaumferðar.
Smýgur inn í viðinn og tryggir viðloðun síðari umferða. Er þáttur í kerfismálun, þar sem hún ásamt grunnolíu og þekjandi yfirmálningu tryggir hámarks- hulu, endingu og aukavernd. Hindrar rakaupptöku og sprungumyndun. Hindrar myglu- og sveppagróður á yfirborði lokaumferðar.
Staðsetning og opnunartímar
Flugger passar uppá umhverfið