Vörur

Grunnar utanhúss


  • Flügger Facade Beton

    Sterk, teygjanleg og mjög litheldin útveggjamálning. Hefur mikið vatns-og veðrunarþol og myndar yfirborð sem óhreinkast lítt. Koltvísýringur loftsins kemst ekki gegnum yfirborð sem meðhöndlað er með Flügger Facade Beton. þetta hindrar niðurbrotsáhrif koltvísýrings á steypta fleti.

  • Flügger Facade Impredur

    Sérhönnuð, mött útveggjamálning, hrindir óhreinindum frá. Skilar vatnsfráhrindandi, sterku yfirborði sem hefur frábært veðrunarþol. Veitir hámarksvörn gegn vatnsupptöku, t.d. við slagregn, sem hripar af. Jafnframt er flöturinn mjög öndunarvirkur, þannig að vatnsgufa innan frá á greiða leið út.

  • Flügger Facade Primer

    Alhliða múrgrunnur. Bindur og styrkir flötinn. Smýgur inn og stórminnkar vatnsupptöku. Bætir viðloðun við næsta málningarlag og leiðir til jafnari áferðar. Skilar yfirborði sem er vatnsfráhrindandi en öndunarvirkt þannig að vatnsgufa innanfrá kemst út.

  • Flügger Facade Silikat

    Hefðbundin silikatmálning. Myndar fallegt, almatt en lifandi yfirborð með eigin sérkennum. Silikatmálaðir veggir eru mjög öndunarvirkir, þannig að raki innanfrá á greiða leið út. Bindiefnið kalíum- vatnsgler hvarfast við koldíoxíð loftsins og kalkið í steinyfirborðinu. Þannig myndast mjög traustar kísiltengingar.

  • Flügger Facade Silikatprimer

    Múrgrunnur byggður á silikati. Myndar sérlega öndunarvirkt yfirborð, þannig að raki innanfrá á greiða leið út. Silikatgrunnur er ætandi.

  • Flügger Facade Universal

    Veðurheldin, alhliða útveggjamálning. Myndar einsleitt, almatt, fallegt yfirborð, eins og kalkað væri. Yfirborðið er veðrunarþolið og hindrar vatnsupptöku (slagregn), einnig öndunarvirkt þannig að raki innanfrá kemst út. Þetta veldur því að Flügger Facade Universal er besta lausnin á kalkaða, létt gljúpa og lítt bundna útveggi.

  • Flügger Facade Armering

    Grunnmálning sem fyllir mjög vel, fyllir upp í smáar sprungur og rifur. Jafnar út áferðarmun í yfirborði. Veitir yfirborðinu fínpússaða áferð.