Alflex 40 er hálfgljáandi hlaupkennt alkýðlakk, sem hefur góða fyllingu og útrennsli. Skilar hörðu yfirborði, sem auðvelt er að þrífa. Þornar með fallegum gljáa.
Exolit V 40 er hálfgljáandi akrýlplastlakk sem berst þykkt á innandyra. Hin sérstaka hlaupkennda seigja veldur góðum samruna og tryggir góða fyllingu og hulu á brúnum. Exolit V 40 gulnar ekki.
Flügger Iso Grund er vatnsþynnt akrýlplastmálning, sem lokar fyrir blæðingu frá vatnsleysanlegum litarefnum. Fljótt má mála yfir Flügger Iso Grund.
Interiør grunnmálning er hvítur grunnur sem gerður er úr blöndu af akrýl og alkýðolíu.Hefur góða viðloðun á gljúpu og létt duftsmitandi yfirborði, einnig á flestum gamalmáluðum flötum. Er lengi að þorna vegna alkýðolíunnar, en hefur þess vegna sérlega góða eiginleika sem grunnur og fyllir vel.
Flügger Interiør 5 milli- og yfirmálning er fljótþornandi akrýlplastmálning, sérlega þægileg í vinnslu. Hefur ágætt útrennsli og hulu.
Interiør heftigrunnur er hvít grunnmálning á harða, slétta fleti þar sem erfitt er að ná viðloðun. Interiør heftigrunnur hefur gott útrennsli og skilar fallegu, fylltu yfirborði
Interiør 50 er hálfgljáandi akrýlplastlakk sem hefur mjög svipaða eiginleika og alkýðlakk, með hart yfirborð sem ekki gulnar og auðvelt er að þrífa. Gott útrennsli.
Staðsetning og opnunartímar
Flugger passar uppá umhverfið