Flutex 5 myndar matt yfirborð. Efnið er létt í notkun, auðvelt að endurmála og skilar velbundinni filmu sem er þvottheld og með hámarkshulu. Þolir venjulega hreingerningu þar sem allt yfirborðið er hreinsað í einu.
Dekso 5 sameinar glæsilega matta lokaáferð og auðveld þrif. Yfirborðið er sérlega slitsterkt og hrindir frá óhreinindum, þannig að auðvelt er að fjarlægja bletti.
Dekso 25 er málning sem gulnar ekki, hefur hámarks slitstyrk og óhreinkast lítt. Þolir háþrýstihreinsun: Hámark 80 bör, minnst 30 cm frá fleti. Hámarksvatnshiti 30°C
Flutex 3 er létt í notkun, myndar almatt yfirborð sem hefur lítinn styrk en duftsmitar ekki. Fæst einnig í litnum últramarin, sem er minna bundinn og smitar. Flutex 3 airless er akrýlplasmálning sem inniheldur glimmer, sem tryggir jafna áferð á misgljúpum fleti. Hentar sérlega vel til að sprauta gljúpa fleti.
Flutex 4 hefur matt yfirborð sem þolir létta hreingerningu. Efnið er létt í notkun, auðvelt við endurmálun og myndar velbundið yfirborð. Hylur einnig vel.
Flutex 10 myndar filmu með lágum gljáa. Efnið er meðfærilegt, auðvelt í endurmálun. Myndar stekt yfirborð sem auðvelt er að þrífa. Nýmálað getur Flutex 10, í sterkum litum, smitað vegna umframlitarefna.
Flutex 20 skilar hálfmöttu yfirborði. Efnið er létt í notkun, auðvelt að endurmála, mjög sterkt og gott að hreinsa. Flutex 20, í sterkum litum, getur í fyrstu smitað vegna umframlitarefna.
Flutex 2S er vel fyllt plastmálning sem hefur góða hulu. Myndar fallegt almatt og enduskinslaust yfirborð. Flutex 2S er sérstaklega gott þar sem þörf er á jöfnu og sléttu yfirborði með lágmarks áferð eins og t.d. gipsplötuloft með eða án glerflóka. Enduskinslaust yfirborðið hentar einnig vel á stóra loftfleti þar sem innfallandi ljós kallar oft fram rúlluför og misfellur.
Flutex 7S er sérlega fyllt plastmálning, sem myndar sterkt yfirborð sem gott er að þrífa. Hentar vel sem grunnur og lokaumferð á glervef og ójafnan gljúpan grunn. Hún skilar fylltri og jafnri filmu með mjúkri áferð.
Flutex 20S er plastmálning með sérlega góða fyllingu, sem myndar sterkt, matt yfirborð sem gott er að þrífa.
Flügger Iso Grund er vatnsþynnt akrýlplastmálning, sem lokar fyrir blæðingu frá vatnsleysanlegum litarefnum. Fljótt má mála yfir Flügger Iso Grund.
Flügger Iso Primer & Finish er grunn- og yfirmálning með einstaka einangrandi eiginleika gegn blæðingu vatnsleysanlegra litarefna. Málningin myndar matta, sterka filmu sem þolir þvott.
Staðsetning og opnunartímar
Flugger passar uppá umhverfið