Fagmenn

Margreynd hugmynd


Það er mikið öryggi fólgið í því að verða hluti af Flügger-málningarverslanakeðjunni. Þú færð aðild að starfsemi sem styrkist með hverju árinu.

Þú selur vörur sem kröfuharðir málarar og neytendur nota á hverjum degi á Norðurlöndum og á Íslandi. Vöruúrval okkar er vandlega úthugsað og aðaláherslan er lögð á málningu á veggi og loft og málningu á timbur og viðarklæðningu. Hver einasta Flügger-málningarvöruverslun selur svo auðvitað líka spartlefni, vörur til hreingerninga og grunnunar og pensla og önnur verkfæri. Þú getur treyst því að finna í hillum verslunarinnar allt það sem þörf er fyrir. Vörudreifing til verslana er mjög vel skipulögð og bara í Skandinavíu eru eknir rúmlega 20.000 kílómetrar daglega með vörur til allra verslana og viðskiptavina.

Einfalt og kröftugt

Nýja verslunin þín ber skýr og greinileg einkenni Flügger-verslana. Þannig er tryggt að fyrirtækið nær augum viðskiptavina og þeir geta treyst því allt frá upphafi. Allar verslanirnar eru innréttaðar eftir sömu meginreglum, með eins innréttingum og litum og úr sama efnivið.

Verslunin verður að vera hagkvæm í notkun fyrir bæði starfsfólk þitt og viðskiptavini. Þess vegna byggist skipulag okkar alltaf á einföldum verslunum sem auðvelt er að rata um.

Markaðssetningin einkennist af einföldum en öflugum boðskap. Hún á sér stað á landsvísu, tryggir að almenningur þekkir fyrirtækið og leggur áherslu á góða ímynd þess. Við aðstoðum þig einnig við markaðssetninguna á þínu heimasvæði með því að tryggja að fyrirtækið sé sýnilegt og að það uppfylli þær kröfur sem Flügger gerir um kynninguna.