Fagmenn

Hvernig á að hefjast handa?


Ef þú hefur áhuga á að opna verslun er mikilvægasta skrefið það að reikna út hvernig fótum reksturinn stendur fjárhagslega í upphafi og fyrstu árin. Þannig kemstu hjá óþægilegum og óvæntum atburðum.

Við sjáum um fjárhagslega umgjörð og samningagerð. Þú færð fjárhagslega aðstoð til þess að kaupa innréttingar og blöndunarvél.
  • Við aðstoðum þig við að finna bestu staðsetninguna og gott húsnæði. Arkitektar okkar hanna verslunina og verslunarráðunautur okkar aðstoðar þig við að koma innréttingunni endanlega fyrir.
  • Við setjum saman vöruúrval við þitt hæfi og pöntum fyrstu vörusendingarnar.
  • Þú færð aðstoð við markaðssetninguna til að byrja með. Við ákveðum í sameiningu hvernig staðið verður að opnuninni og vexti fyrirtækisins fyrstu mánuðina til þess að þú náir þér vel á strik.

Hefurðu áhuga?

Hafðu samband við framkvæmdastjóra okkar Vigfús Gíslason í síma 567 4400 eða á netfang hans: vigi@flugger.com