NÝIR ÚTIPENSLAR 2024 - GOTT GRIP OG VINNSLUEIGINLEIKAR

Vissir þú að í Flügger framleiðum við okkar eigin pensla?

Vöruþróunarferlið okkar er yfirgripsmikið og þaulskoðað, greint og prófað áður en ný vara fær að líta dagsins ljós. Okkar sérfræðingar sem eru menntaðir í málarafaginu hafa nú þróað nýja línu af útipenslum í samstarfi við málarameistara.

  • Gúmmí á skaftinu til að tryggja betra grip og minna álag á hendi við vinnsluna
  • Hárin eru sérstaklega þróuð fyrir úti efni til að pensillinn taki vel af efni í sig og skili því vel á flötin sem á að mála
  • Pensillinn hvílir vel á fötunni á milli verka
  • Passar á nýju sköftin sem eru sterkari en áður og þægilegri í notkun
  • 3 breiddir: 75 / 100 / 120 mm