Pallurinn hreinsaður – skref fyrir skref

Hér koma einfaldar og ítarlegar leiðbeiningar um það hvernig á að hreinsa viðarpallinn og gera hann skínandi hreinan áður en þú berð pallaolíu á hann.

Þrífðu pallinn á skýjuðum degi svo hreinsiefnið þorni ekki of hratt ofan í pallinn

• Byrjaðu á því að bleyta yfirborðið áður en hreinsiefnið er borið á svo að hreinsiefnið þorni ekki ofan í viðinn

• Hreinsaðu yfirborðið á 5-10 m2 svæðum

• Berðu Flügger Terrace Cleaner á alveg óþynnt (óblandað) úr brúsanum og láttu það virka í u.þ.b. 10 mínútur. Þú getur borið hreinsiefnið á með pensli eða rúllu, þægilegast er að smella rúllunni eða penslinum á skaft til að auðvelda þér verkið.

• Þegar 10 mínúturnar eru liðnar þá er best að bleyta aftur með vatni og skrúbba yfirborðið með stífum bursta

• Skolið yfirborðið hreint með garðslöngu, notið ríkulegt magn af hreinu vatni. Fara þarf mjög varlega ef háþrýstidæla er notuð, en hún gæti rifið upp viðinn.

• Ef alvarleg óhreinindi eru til staðar fram má endurtaka aðferðina

• Notaðu Flügger Facade Clean við reglubundna hreinsun – fylgdu leiðbeiningunum/blönduninni hlutfall á merkimiða/gagnablaði = 1:15. Reglubundin þrif á pallinum eru nauðsynleg en á pallinn setjast óhreinindi alveg eins og á bílinn þinn.